fimmtudagur, apríl 27, 2006

gone

!!smá tilkynning!!
ég er svona eiginlega kannski bara smávegis örlítið oggupons hætt með þessa síðu í ogguponsulítinn agnarsmáan tíma. takk fyrir mig.
önnur síða - - > http://www.hellingur.bloggar.is :)
takk fyrir lesninguna (er það til?) á þessari undurfögru síðu.
ég kem aftur ef hitt er ekki að gera sig!
Svanhildur Kristínardóttir kveður með bros á vör:D

mánudagur, apríl 24, 2006

það er mánudagsmorgunn og sólin hún skín innum gluggann.

ég vil byrja á því að afsaka síðustu bloggfærslu. hahaha ég var alveg í ruglinu, þreytt og úldin og asnaleg og vissi ekkert hvað ég var að rugla:) en allavega.
ég er í skólanum í augnablikinu, er bara að bíða eftir því að sál103 byrji.. ekki gaman. eftir það er síðan eyða til 13:15, það er hinsvegar gaman:) en helgin hjá mér var bara helvíti góð verð ég að segja. sjónvarpsgláp með Grétu á föstudaginn og partý hjá Unni á laugardaginn og video gláp með Andreu og Grétu í gærkvöldi:) partýið fór bara vel fram þrátt fyrir ölvun ákveðinna aðila, nefni engin nöfn:P haha! en það var allt í góðu, ekkert vesen á mannskapnum:D og síðan má ekki gleyma leiksýningunni sem við skelltum okkur á hjá Kröflu, sem er leikfélag Hríseyjar:) það voru sýndir 4 einþáttungar eða hvað það nú heitir og það fór allt (eða næstum allt) svakalega vel fram. smá gleymska á textanum hjá krökkunum en það var bara skemmtilegt:D svo var ég rosa dugleg að skúra á sunnudaginn og fékk ég Andreu til liðs við mig, síðan bættist Gréta í hópinn. en hún var eiginlega bara fyrir mér í klunnalegu stígvélunum. hahah:D:* við horfðum síðan á Cellular um kvöldið og átum doritos rétt sem Andrea gæskan var rosa dugleg að búa til:D mmm þetta er lostæti:P kom reyndar viðbjóðsleg lykt inn í herbergið :') en það var allt í lagi, ég og Gréta þurftum allavega ekki að sofa þar! hahahaha:D fyrirgefðu Andrea mín:$:) Grétu tókst að sulla sprite í koddann hennar Andreu og ég eignaðist kærasta. hann heitir Hörður og er bangsi:)
á föstudaginn var ég farin að halda að sumarið væri komið, þar sem það var nú einu sinni sumardagurinn fyrsti á fimmtudaginn. en neinei það byrjaði að snjóa aftur! helvískur. ég varð brjáluð:( en viti menn! þegar ég vaknaði í morgun var aftur komið gott veður:D sól og læti sko! Ekki amalegt það;) vonum bara að það staldri eitthvað við hérna fyrir norðan þetta góða veður. halló sko, leyfa okkur að fá gott veður svona einu sinni. smá tilbreyting hérna!
en váá þetta er síðasta vikan í skólanum sem er að byrja!! eruði að grínast:S vá, þetta er skrítið. það eru 8 dagar þangað til að ég fer í mitt fyrsta próf, íslenskupróf. obbossí ég fell sko! neiiii djók=) íslenskan er chill marr. haha ein voða svöl. en síðan eru próf í næstu viku semsagt og síðan tvö eða þrjú í vikunni þar á eftir, þá er maður bara kominn í sumar"frí" :) vinnan tekur við og allt voða skemmtilegt.
en vá, horfðuði á Kompás í gærkvöldi? ok þið haldið örugglega að ég sé algjör hálviti, vitið ekkert hvað þetta kvompkvás er ! en ég vona að þið vitið hvað það er vegna þess að þetta eru fjári góðir þættir oft. þetta eru semsagt svona... öö ég veit eiginlega ekki hvernig þættir þetta eru, en það er verið að fjalla um svona ýmsa hluti. í gær var m.a. fjallað um dópneyslu á læknadópi. það var farið heim til fólks sem stundar þetta og verið að sýna hvernig lífið þeirra er. jesús minn þetta var hrikalegt:( og það var sýnt þegar fólkið var að sprauta sig! pældu í því ..!! það var sko viðbjóður, úff ég fæ alveg hroll þegar ég skrifa þetta.
en allavega, ég mæli með Kompás á Stöð2 á sunnudagskvöldum, svona oftast allavega:)
en ég nenni þessu ekki lengur, er farin í Gryfjuna góðu eða eitthvað.. vi ses!

Svanhildur Kristínardóttir langar í tölvuna sína:(

sunnudagur, apríl 23, 2006

sunnudagur til svefns..

Jájá góða kvöldið. ég er að spá í að kasta einu bloggi hérna inn fyrir ykkur kæru lesendur. ætti reyndar að fara að sofa þar sem ég fer kannski með 7 ferjunni inn á Akureyri í fyrramálið. takk fyrir kærlega.
en undanfarnir dagar hafa bara verið með eindæmum góðir hjá mér. lítið að gerast reyndar. fór til hríseyjar á föstudaginn, sem er ekkert nema gott. man ekki alveg hvað ég gerði á föstudagskvöldið, jú reyndar. gréta yndisfagra kom til mín og við gláptum á ekkert í sjónvarpinu. geðveikt fjör sko. sofnuðum örugglega fjörtíu sinnum yfir leiðinlegri mynd um einhverja drottningu. jess. en allavega, ég er ótrúlega tóm í kollinum núna.
en allavega, unnur hélt upp á afmælið sitt í gær. hún á afmæli á miðvikudaginn ef ég man rétt. 26.apríl á hún allavega afmæli, óska þér til hamingju þá elskan. en það var bara rosa gaman, mikið partý og mikið fjör:) en ég verð eiginlega bara að láta þetta gott heita í kvöld. ég hef ekkert að segja, þar sem ég er alveg að sofna hérna. almáttugur.
en ekki eiga von á bloggi næstu daga, tölvan er ennþá asnaleg og í viðgerð. kemur vonandi í vikunni. en ég er farin að sofa. guten nacht;*

Svanhildur Kristínardóttir þakkar öllum fyrir gott partý;);*

föstudagur, apríl 21, 2006

blöh?

góðan daginn gott fólk. þið verðið að afsaka bloggleysi mitt undanfarið. en þannig er mál með vexti að tölvan mín tók upp á því að verða asnaleg. hún vill nefnilega ekki kveikja á sér. alveg er þetta með ólíkindum .. hehe! en planoð er að fara með hana í ejs og láta kallana þar skoða hana eitthvað. vona að það sé ekkert voðalegt að henni, elskunni.
annars er bara allt gott að frétta. fór í skólann á miðvikudaginn og síðan var náttúrulega frí í gær. miðvikudagskvöldið átti að notfærast í skemmtilega bíóferð, en því miður varð ekkert úr því og það endaði með "chilli" á vistinni. gaman að því.. en gærdagurinn var bara rólegur, var alveg að drepast úr strengjum og ekki gott að hreyfa sig=( svo að ég skellti mér í sund og slakaði VEL á í pottunum. þegar leið á þessa sundferð voru allir pottarnir og sundlaugarnar orðnar alveg troooðfullar svo að við fórum bara upp úr. ekkert gaman að þurfa að snerta einhverjar ókunnugar tær í hvert sinn sem maður hreyfir sig. ojbara!
en þrátt fyrir strengi og leiðindi eftir íþróttatíma á miðvikudaginn þá fór ég í töluvert langan göngutúr. labbaði inn í þorp og aftur til baka. og við fórum örugglega lengstu leiðina sem við gátum fundið.
í dag er semsagt föstudagur og planið er að fara heim í hrísey, eins og flesta föstudaga. laugardagurinn er planaður og verður vonandi mjög skemmtilegur=) leiksýning hjá kröflu og eftir það afmæli hjá unni gellu;D;* hún á afmæli á miðvikudaginn og verður 17 ára! til hamingju með það elskan*:*
en síðan er bara næsta skólavika eftir og í vikunni þar á eftir byrja próf. halelúja og amen fyrir því.
en ég er í skólanum núna og ákvað að nota tímann á meðan ég er í eyðu að blogga smá. var í íþróttum en vorum búin fyrr og síðan fer ég í lol á eftir og er síðan komin í helgarfrí, það er bara ljúft:)
en ég nenni ekki að blogga meira, er að spá í að fara bara að skokka (eða ekki) yfir í c-álmuna góðu og fara í smá lol og eftir það ætla ég að fá mér pítu;) mmmmm...
vitið þið samt hvað er að "gilla"? :D

þangað til næst ..

Svanhildur Kristínardóttir

mánudagur, apríl 17, 2006

guð minn almáttugur..

Hahaha! Þið eruð að grínast í mér. Ég var að skoða einhverja eldgamla myndasíðu og guð minn góður. Ég bara VERÐ að henda nokkrum myndum hérna inn. Hehe þetta er snilld=)












Æji hérna er Reynir minn :) hehe tannlaus! Dúllan:*



OOJJJ þið eruð að grínast!! Oj oj oj .. ég er myglaðari en camembert sko!!
Þessi mynd var tekin þegar ég var í 9.bekk. Og snemma um morguninn. Oj ég er ógeðsleg þarna:') haha!!


Úff þetta er nú meira sjokkið.


Vá, það sem maður var eitthvað .. ehm .. furðulegur:P haha! Flottar myndir ..;)
en ég held að ég finni pönnukökuilm. Þannig að ég er farin upp að tékka á þessu;)

Svanhildur Kristínardóttir

sunnudagur, apríl 16, 2006

* * * *

Halló ég heiti Svanhildur og ég er bloggisti.
Dómur hefur verið útskurðaður, Svanhildur er bloggisti. Já svona er þetta bara, ég verð bara að lifa við þetta. Nei vá, ég vona að ég verði ekki sjötug kerling bloggandi á hverjum einasta degi og hef engan tíma í barnabörnin. Síður en svo.. ég ætla að vera amma sem hefur alltaf tíma fyrir barnabörnin og á alltaf bakkelsi:) Það er svo krúttlegt.
En nóg um ömmur. Nei annars, mín amma er í heimsókn:) híhí..
Ok. Páskadagur er á morgun, mjög gaman að því. Þá fær maður páskaegg! Mmmm ....:P Ég fæ meira segja tvö..eitt númer 4 og eitt númer 6. Mér finnst það eiginlega alltof mikið=/ En svona er maður dekraður .. haha!
En já. Ég fór í "labbitúr" með múttu áðan. Hún vildi eitthvað voða mikið fá mig með sér til Bróa að sækja einhverja brenglaða poka. En allt í lagi, ég fór með henni. Við lentum reyndar inni á Bergi. Hahaha hljómar eins og við höfum lent inná einhverjum geðspítala:') En allavega, mamma lenti á spjalli við eitthvað fólk og ég sat þarna eins og einhver rotta!! En síðan röltum við aftur heim. En á leiðinni vorum við eitthvað að tala um það hvað fólk væri gamalt. Fólkið sem mamma var að spjalla við var semsagt tvö hjón. Og konurnar eru tvíburar og heita semsagt Harpa og Svala. (þið segið mér bara ef þið eruð ekki alveg að fylgja) Allavega. Mamma sagði svona: "Já, Harpa er sko 37.. alveg eins og Svala" Og ég bara: "Já, okei." Og mamma alveg leit á mig eins og ég væri hálviti og sagði svo: "Þetta átti sko að vera svona brandari .." Og ég alveg þarna eins og fíbbl!!! HAHAHAHA :') ég fattaði þetta ekki ... !! þúst .. ? DÖÖ!! Hversu brenglaður getur einn maður verið.
En allavega, býst ekki við að margir hafi fattað þetta. Allt voða asnalega orðað hjá mér eitthvað..
Mig langar að flytja til Danmerkur. Úff ég fór bara allt í einu að pæla í þessu. Maður getur verið svo soðinn stundum. En er það ekki bara gangur lífsins. Svona eins og að fylgja tískunni ..
Ok þetta skildi enginn ;D Nema kannski mamma ..
Ég skil samt ekki alveg hvað ég er að hanga hérna í tölvunni endalaust, ég er að drepast úr hálsríg og þreytu. Ég fæ stundum bara svona óæskilega löngun í að tjá mig eitthvað voðalega mikið hérna. Skil þetta ekki. Ég ætti kannski bara að fá mér stílabók og skrifa dagbók þar. Svona þar sem enginn getur séð það, þá gæti ég kannski skrifað bara ALLT sem ég hugsa. Ég meina, margir gera það, er það ekki? Ég efast samt um að ég myndi nenna því, það tekur langan tíma að skrifa með blýanti/penna.
Vitiði hvernig 9" pizza er ? Ég veit ekki hvort hún sé jafn stór á öllum stöðum, en jú hlýtur að vera:') haha! En allavega, ég fékk eina slíka í kvöldmat. Ég skar hana í fjóra bita .. og skar síðan einn einn fjórðu bitann í helming, þannig að það var kominn einn áttundi, ekki satt? En já, ég borðaði einn áttunda af allri pizzunni!!:O Og þetta var 9" pizza!! Þvílík svengd.. ? nei.
En þetta er eiginlega orðið alltof langt blogg, miðað við að ég bloggaði síðast í gær .. og það var ekkert mjög stutt blogg. Hehe!
En mig langar að benda fólki á nokkur góð lög.
Katie Melua - Spiders Web
Katie Melua - I Cried For You
Katie Melua - Just Like Heaven

ok.. öll lög með Katie Melua;)










Svanhildur Kristínardóttir

Viðbæting stuttu seinna ..
Áður en ég fór úr tölvunni (er reyndar ennþá í henni) þá fór ég á www.sjonvarp.is og ætlaði að tékka hvort það væri eitthvað gaman í sjónvarpinu. Sá þá mynd sem byrjaði bara mjög seint. Stealing Harvard heitir hún. Ég held að ég hafi séð hana, en ég bara því miður get ekki munað með hverjum ég horfði á hana! Vill einhver bjóða sig fram? Takk. En allavega, ég fór að spá... svona afþví að hún byrjar svo seint. Afhverju er ekki til Stöð2 - ? Það er náttúrulega til Stöð2 + ... Svona til að horfa á klukkutíma seinna, en afhverju ekki að leyfa okkur að horfa á það klukkutíma FYRR? :D Það væri reyndar svolítið erfitt ef það væri Bein Útsending :') hahahaha! En þetta er samt hugmynd .. ! Hmm ?;) Þið dagskrárgerðarmenn og sjónvarpsstjórar, eða hvað þið heitið allir saman, sem lesið bloggið mitt (haha :') )... íhugið þetta!;) ..Takk fyrir MIG!

föstudagur, apríl 14, 2006

I'll cry for you ..

Ég er eitthvað voðalega óákveðin þessa dagana. Skil þetta ekki alveg! Þið hafið kannski heyrt um nýja bloggkerfið á mbl.is? En auðvitað þurfti ég að skrá mig á það og prufa:$ Ekki nógu sniðugt þar sem að blogspot.com er langbest og ég hef OFT sagt það! Og hana nú. Ég hef fengið nóg af að prufa eitthvað annað rusl.. prufaði líka eitthvað blogsource um daginn:S Heyrðu nei, það er ekki alveg að gera sig krakkar mínir. Ekki alveg nei. En ég ætla nú samt að leyfa ykkur að sjá mbl síðuna þarna .. slóðin er http://www.svanhildur.blog.is Já, mér finnst þetta ekkert spes ef ég á að vera hreinskilin=/ En svona er þetta. Í guðanna bænum drulliði yfir þetta. Bara svona til að ég haldi mig við þetta blogg. Ég fíla það lang best. Annað er bara pappírsrusl! Jesús.
En annars er ég búin að vera alveg óttalega löt síðastliðna tvo daga, eða síðan ég kom heim. Jeremías! Það er nú meiri letin í mannskapnum. Ég fór nú samt út á röltið með Grétu og Andreu í dag. Það var bara fínt, enda var alveg æðislegt veður. Eða svoleiðis sko..;) Reyndar pínu kalt. En er það ekki bara hressandi? Jú svei mér þá!
Mamma fór á Akureyri í dag ...eða nei var það í gær? Jæja. Hún keypti páskaegg. Já krakkar mínir, ég er nú ekki orðin of stór til að fá páskaegg, hvað er þetta!! Mamma setti þau á þvílíkt áberandi stað þannig að ég hvert sinn sem ég kem inn í eldhús byrja ég að slefa! Neinei okay, ekki alveg kannski. En ég efast um að ég torgi heilu páskaeggi. Úff.. hún keypti númer 6!! Mér finnst það alltof mikið:$ En mér finnst nú líklegt að maður fái einhverja hjálp við átið á þessu.
Ég er ekki alveg að fíla Eyjabúðina þessa stundina. Ég ætlaði að fá mér Hunangshnetuseríós í dag.. eða ég fékk mér þannig. En síðan var komið að skál nr.2 og ég hellti úr blárri 1 lítra mjólkurfernu, en síðan kláraðist hún áður en nóg var komið af mjólk í skálina mína. Ég ætlaði að ná mér í meiri mjólk inn í ísskáp en neinei, þá var hún búin=/ Obbossí! En það var nú til smá dreitill af léttri mjólk (þessi gula þið vitið) og ég sletti smá af henni í skálina mína, þrátt fyrir að ég vissi að þessi bláa og þessi gula pössuðu ekkert mjög vel saman. En það reddaðist. Seinna um daginn fór mamma í búðina og ætlaði að kaupa mjólk, þar sem mjólkin var nánast búin fattiði, en neinei þá var ekki til mjólk í búðinni!!!! HVAÐ ER ÞAÐ!! Halló halló segi ég bara..! Ekki alveg að gera sig.. Síðan fórum við að ræða það hvað mjólkin væri nauðsynleg. Mamma sagði eitthvað: "Já, maður verður að hafa mjólk fyrir kaffið, kakó, seríós o.fl." Þá "gúlpraði" pabbi út úr sér: "Já og með POPPI" Jahh svei mér þá, kallinn drekkur mjólk með poppi. Er það nú ..!
En svona er þetta. Jæja krakkar mínir, það eru bara alveg að koma páskar. Jessör! Gaman að því:) Við að fá gesti á morgun og svona .. Amma, Guðný, Gísli og Ingólfur sæti Arnar;D Það verður bara gaman. Jamm ..
Síðan er á dagskrá að ég og Reynir skiptum um herbergi..! Almáttugur, hvað er það!! Já, æji ég hata kjallarann;$ Obbossí ..En það verður vonandi bara gott að komast aftur í gamla herbergið:) Svo verð ég líka nær stofunni og eldhúsinu .. sem eru btw bestu staðirnir í húsinu!!!:)
En ég er að spá í að enda þetta með smá væmni:)

Stal þessu af síðunni hennar Kolbrúnar;)

A girl asked a guy if he thought she was pretty... he said no.She asked him if he would want to be with her forever... and he said no.She then asked him if she were to leave would he cry, and once again he replied with a no.She had heard enough. As she walked away, tears streaming down her face the boy grabbed her arm and said...You're not pretty, you're beautiful.I don't want to be with you forever. I need to be with you forever.And I wouldn't cry if you walked away... I'd die.

Svanhildur Kristínardóttir